Hatari – Dansið Eða Deyið

Official music video 'Dansið Eða Deyið' per­formed by 'Hatari'.

Lyrics of 'Hatari – Dansið Eða Deyið'

Þrælar
Gengilbeinur ræningja
Tannlausu kjölturakkar
Sníkjudýr brauðmylsna
Blindingjar og aumingjar
Neytendur og klámhundar
Grindhoruðu betlarar

Marklausu peð
Leiksoppar hrægamma
Höh!
Úrhrök
Sameinist ómagar bak í bak og dansið

Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Áður en ég dey skal ég dansa með þér
Skal ég dansa með þér

Varpið hulunni af hendi myrkrahöfðingjans
Steypið af stóli þrælapís­karan­um og látið hann súpa
Eigið meðal
Setjið hann undir okið
Sameinist ómagar og þrælið aldrei framar
Bak í bak og dansið

Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Áður en ég dey, skal ég dansa með þér
Já skal ég dansa með þér

Við deyjum öll, ég vil deyja með þér
Sama hvað, sama hvert ég fer
Við deyjum öll, þú munt deyja með mér
Áður en ég fer, áður en ég fer

Skal ég dansa með þér

Dansið, eða lútið oki kúgarans
Áður en ég fer, áður en ég fer
Það er núna eða aldrei
Dansið eða deyið

Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Dansið, eða lútið oki kúgarans
Áður en ég dey, skal ég dansa með þér
Það er núna eða aldrei, dansið eða deyið

Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Dansið, eða lútið oki kúgarans
Áður en ég fer, áður en ég fer
Skal ég dansa með þér

Most popular posts of the last 30 days

Founder

Your email address will not be published. Required fields are marked *